Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn

Stóri plokkdagurinn verður haldinn sunnudaginn 28. apríl um land allt og því sniðugt að kynna sér helstu upplýsingar og jafnvel hita upp.

Akureyringar eru hvattir til að hreinsa (plokka) rusl í sínu nærumhverfi enda er ýmislegt sem kemur í ljós þegar snjórinn hverfur á vorin. Plokk er frábær útivera og gefandi verkefni sem eflir núvitund og gerir umhverfinu gott. Plokkið kostar ekkert og kallar ekki á búnað eða tæki nema þá helst ruslapoka og hanska.

Facebook-hópurinn Plokk á Akureyri er sniðugur vettvangur til að hafa samband við aðra plokkara, merkja sér svæði til að hreinsa og láta vita hvernig gengur í máli og myndum.

Plokkarar eru vinsamlega beðnir um að nota glæra ruslapoka í plokki sínu til að auðvelda flokkun og urðun. Plokkarar eru jafnframt beðnir um að tilkynna um þá staði þar sem pokar eru skildir eftir í gegnum ábendingagátt sveitarfélagsins eða með Akureyrarappinu, þar sem hægt er að taka mynd með nákvæmri staðsetningu. Í gegnum ábendingagátt er einnig tilvalið að benda sveitarfélaginu á svæði sem þarf að hreinsa sérstaklega eða koma með ábendingar um annað það sem betur má fara.

Stærri hópar sem hafa áhuga á að plokka er bent á að hafa samband við umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar til að fá ráðleggingar um svæði sem þörf er á að plokka. Hægt er að senda tölvupóst á netfangið jbg@akureyri.is.

Nokkur góð ráð:

  • Plokkum og hreyfum okkur í leiðinni – æfing dagsins
  • Klæðum okkur eftir veðri
  • Notum hanska og tangir ef þær eru til. Hægt að fá lánaðar tangir á Amtsbókasafninu á Akureyri og á umhverfismiðstöð Rangárvöllum (takmarkað magn í boði)
  • Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera, en tilkynna til foreldra eða umsjónarmanna svo mögulegt sé að fjarlægja þá
  • Virkjum fjölskylduna, vini og nágranna en hver á sínum hraða

Góða plokk-skemmtun á sunnudag!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan